Aðstoð

Sendu okkur línu á hallo@bookspeak.net — við svörum samdægurs.

Hvernig bý ég til hóp?

Á forsíðunni velur þú Búa til hóp og síðan tegund: Bókaklúbburinn (bók mánaðarins, einkunnir, meðmæli, sagan) eða Hittingur (reglulegur viðburður með mætingu).

Hvernig býð ég fólki í hópinn?

Opnaðu hópinn og veldu Bjóða. Þú getur boðið bókavinum beint eða afritað boðshlekk og sent hann áfram. Sá sem fær hlekkinn sækir Bookspeak, smellir aftur á hlekkinn og gengur í hópinn. Hópar eru lokaðir — enginn kemst inn án boðs.

Ég fæ engar áminningar

Athugaðu tvennt: að þú hafir leyft tilkynningar þegar appið bað um það (Stillingar á símanum → Bookspeak → Tilkynningar), og að áminningar séu kveiktar fyrir hópinn. Ef Low Data Mode er á í símanum getur hann haldið aftur af tilkynningum.

Hvernig eyði ég reikningnum mínum?

Flipinn Prófíll → skrunaðu niður → Eyða aðgangi. Þá er reikningnum og gögnunum þínum eytt. Efni sem þú settir inn í hóp getur staðið eftir hjá hópnum án tengingar við þig.

Hvernig fer ég úr hópi?

Opnaðu hópinn og veldu að ganga úr honum. Hópstjóri getur líka fjarlægt meðlimi.

Finn ekki bókina mína

Bókasafnið nær yfir allar íslenskar bækur og þýðingar síðustu tíu ára og stækkar stöðugt. Finnir þú ekki titil máttu senda okkur hann á hallo@bookspeak.net og við bætum honum við.

Annað

Persónuvernd · Skilmálar

← Til baka á forsíðu