Skilmálar
Gildir frá 28. október 2026 · Síðast uppfært 28. október 2026
Bookspeak er bókaapp: hillurnar þínar, einkunnir og umsagnir, bókavinir, bókaklúbbar og opnir bókaþræðir. Hér eru reglurnar sem gilda þegar þú notar það. Með því að nota Bookspeak samþykkir þú þær.
Hver rekur Bookspeak
Bookspeak er rekið á Íslandi. Þú nærð í okkur á hallo@bookspeak.net.
Reikningurinn
Þú þarft að vera 13 ára eða eldri til að stofna reikning. Við nýskráningu gefur þú upp nafn og netfang. Nafnið sést öðrum lesendum, til dæmis með umsögnunum þínum, og því máttu ekki nota nafn annarrar manneskju. Þú berð ábyrgð á því sem gert er á reikningnum þínum. Láttu okkur vita ef þú heldur að einhver annar hafi komist inn á hann.
Efnið þitt
Það sem þú skrifar og setur inn — umsagnir, einkunnir, Mínir punktar, myndir og annað — er áfram þitt. Þú veitir okkur heimild til að geyma það og sýna það í appinu þeim sem eiga að sjá það: umsagnir sjá allir notendur Bookspeak, efni í bókaklúbbi sjá félagarnir í klúbbnum, og Mína punkta sérð aðeins þú.
Þú mátt aðeins setja inn efni sem þú hefur rétt til að deila.
Ekkert umburðarlyndi gagnvart óviðeigandi efni
Í Bookspeak er ekkert umburðarlyndi gagnvart óviðeigandi efni og misnotkun. Þetta er bannað:
- hatur — efni sem ræðst á fólk vegna uppruna, trúar, kyns, kynhneigðar, kynvitundar, fötlunar eða annars sem það er;
- áreitni — hótanir, einelti og að elta fólk eða ofsækja;
- kynferðislegt efni;
- ruslpóstur — auglýsingar, sama efnið aftur og aftur, og hlekkir sem eiga ekki heima í spjalli um bækur;
- eftirherma — að þykjast vera önnur manneskja eða villa á sér heimildir;
- ólöglegt efni og efni sem brýtur á rétti annarra.
Að tilkynna og loka á
Sjáir þú efni eða lesanda sem brýtur þessar reglur getur þú látið ritstjórn vita beint í appinu:
- Á umsögn annarra: ýttu á „…“ og veldu Tilkynna umsögn eða Loka á lesanda.
- Í Bókavinum mínum: haltu fingri á vini og veldu Tilkynna lesanda eða Loka á lesanda.
Þegar þú lokar á lesanda sjáið þið ekki umsagnir hvort annars og hvorugt getur sent hinu vinabeiðni. Viðkomandi fær ekki að vita af því. Lokun tekur engan úr bókaklúbbi sem þið eruð saman í. Þú opnar aftur í Prófíll → Lokaðir notendur.
Ritstjórn fer yfir tilkynningar eins fljótt og auðið er, að jafnaði innan sólarhrings. Þú getur líka skrifað okkur á hallo@bookspeak.net.
Þegar reglurnar eru brotnar
Við megum fela efni og loka reikningum sem brjóta þessar reglur. Umsögn sem ritstjórn felur sést engum nema höfundinum, sem sér hana merkta „Falin af ritstjórn“.
Að eyða reikningnum
Þú getur eytt reikningnum þínum hvenær sem er, beint í appinu: Prófíll → Eyða aðgangi. Hvað hverfur og hvað stendur eftir lestu í persónuverndarstefnunni.
Persónuvernd
Hvernig við förum með persónuupplýsingarnar þínar stendur í persónuverndarstefnunni.
Lög
Íslensk lög gilda um þessa skilmála.
← Til baka á forsíðu