Persónuvernd

Gildir frá 4. nóvember 2026 · Síðast uppfært 4. nóvember 2026

Bookspeak er bókaapp: hillurnar þínar, einkunnir og umsagnir, bókavinir, bókaklúbbar og opnir bókaþræðir. Hér stendur hvaða gögn appið geymir, hver sér þau og hvernig þú eyðir þeim. Í stuttu máli: við seljum ekki gögnin þín, sýnum engar auglýsingar og rekjum þig ekki.

Hver ber ábyrgð

Bookspeak er rekið á Íslandi og ber ábyrgð á gögnunum þínum. Þú nærð í okkur á hallo@bookspeak.net.

Hvaða gögn við geymum

Reikningurinn

Þú skráir þig inn með Apple, Google eða netfangi. Við nýskráningu gefur þú upp nafn og netfang og velur hvort þú vilt fá markaðspóst. Við geymum líka tungumál appsins og auðkennisnúmer reikningsins. Prófílmynd geymist ef þú setur hana inn eða ef innskráningarleiðin gefur hana. Notir þú netfang og lykilorð geymir Firebase lykilorðið — við sjáum það aldrei.

Bækurnar þínar

Hillurnar þínar (Í lestri, Vil lesa, Meðmæli, Lesið, Kláraði ekki og hillur sem þú býrð til), einkunnir á bókum og bókaseríum, og Mínir punktar — það sem þú skrifar hjá þér um bók. Við geymum líka hvort aðrir megi sjá lesnar bækur þínar: hvaða bækur þú hefur falið öðrum og hvort kveikt er á „Aðrir sjá lesnar bækur mínar".

Umsagnir

Skrifir þú umsögn um bók geymum við textann, hvort þú merktir hana sem spilli og hvenær hún var skrifuð og síðast breytt. Umsagnir eru opinberar í appinu — sjá „Hver sér hvað" hér að neðan. Sama gildir um athugasemdir sem þú skrifar í þráðum. Við geymum líka hvaða umsögnum og athugasemdum þér líkar við.

Goodreads-innflutningur

Þú getur flutt bókasafnið þitt frá Goodreads á tvo vegu: valið útflutningsskrána (CSV) í símanum eða sótt hana beint. Sækir þú beint opnast síða Goodreads í vafra inni í appinu og þú skráir þig inn hjá Goodreads. Við sjáum aldrei lykilorðið þitt: appið les enga innsláttarreiti, sækir aðeins útflutningsskrána, og vafrakökur vafrans eru hreinsaðar þegar hann opnast og lokast.

Skráin er lesin á þjóninum okkar. Bækurnar fara í hillurnar þínar, einkunnirnar verða einkunnirnar þínar, og dómar („My Review") og einkanótur („Private Notes") úr skránni fara í Mína punkta. Við geymum líka hverja línu skrárinnar óbreytta á reikningnum þínum, svo ekkert úr safninu þínu glatist. Enginn annar sér þessar línur, og dómar úr Goodreads birtast ekki sem umsagnir í Bookspeak.

Hópar, þræðir og bókavinir

Bókaklúbbar og hittingar sem þú ert í: aðild þín, bækur klúbbsins, bækur sem þú setur í bókalottó klúbbsins, atkvæði þín í bókakosningum, hvort þú mætir á hittinga og bækur sem þú mælir með. Opnir þræðir sem þú fylgir eða stjórnar. Bókavinir: hver er tengdur hverjum, vinabeiðnir og svör við þeim. Til að senda vinabeiðni eða deila bók fær reikningurinn deilikóða — átta stafi í hlekknum sem þú sendir. Kóðinn segir ekkert um þig annað en að hlekkurinn kom frá þér. Þegar þú deilir bók geymum við deilinguna: hvaða bók, frá hverjum, skilaboðin sem þú skrifar (ef einhver) og hvenær. Skilaboðin og nafnið þitt sér aðeins sá sem opnar hlekkinn, í appinu; vefsíða hlekksins sýnir aðeins bókina.

Myndir

Myndir sem þú hleður upp: prófílmynd, mynd hóps eða þráðar og kápumynd bókar sem þú skráir. Appið biður aðeins um aðgang að myndasafninu eða myndavélinni þegar þú velur mynd.

Tilkynningar og lokanir

Þú getur tilkynnt umsögn, bókaumfjöllun, þráð eða notanda sem brýtur reglur appsins, og lokað á notanda. Tilkynning geymir hver tilkynnti, hvað var tilkynnt, ástæðuna og hvenær. Ritstjórn fer yfir hana eins fljótt og auðið er, að jafnaði innan sólarhrings, og getur falið efni eða lokað reikningi. Lokun reiknings geymir hvenær reikningnum var lokað og hver lokaði honum; sé hann opnaður aftur er hvoru tveggja eytt. Lokun geymir hver lokaði á hvern, svo efni frá þeim sem þú lokaðir á birtist þér ekki.

Ýtitilkynningar og áminningar

Til að senda þér ýtitilkynningar geymum við tækjaauðkenni sem Apple eða Google gefur símanum, hvort tækið er iOS eða Android og hvaða útgáfa appsins skráði það. Við skráum líka hvaða áminningar um hittinga hafa verið sendar, svo engin berist tvisvar.

Villuskýrslur

Hrynji appið — eða komi upp villa sem það lifir af — sendir það sjálfvirkt villuskýrslu til Firebase Crashlytics með tæknilegum upplýsingum: hvar villan kom upp, hvaða aðgerð féll, tegund tækis og útgáfu stýrikerfis og apps. Þjónninn okkar skráir líka beiðnir sem mistakast. Hvorugu fylgir nafn, netfang eða það sem þú hefur skrifað — aðeins auðkennisnúmer reikningsins. Við notum þetta eingöngu til að laga bilanir.

Staðsetning

Ef þú leyfir það notar appið staðsetningu símans aðeins til að sýna viðburði nálægt þér, og aðeins á meðan þú notar appið. Sú staðsetning sem appið sendir er ekki nákvæm: hún er námunduð (um 10 km), send með beiðninni um viðburðina og aldrei geymd hjá okkur né skráð.

Það sem við söfnum ekki

Tengiliði, auglýsingaauðkenni eða upplýsingar um hvað þú gerir í öðrum öppum og á vefsíðum. Í appinu er engin notkunargreining og enginn rekjari frá þriðja aðila.

Hver sér hvað

Hillurnar þínar, Mínir punktar og Goodreads-línurnarAðeins þú — nema bækurnar sem þú hefur merkt lesnar, sjá næstu línu.
Bækur sem þú hefur merkt lesnarBókavinir þínir og félagar í hópunum þínum, á síðunni þinni: hvaða bækur þú hefur lesið, einkunnin þín á þeim og hvenær þú last þær. Mínir punktar, aðrar hillur og hver mælti með bók fylgja aldrei. Sá sem þú lokar á — eða sem lokar á þig — sér síðuna ekki. Þú ræður: slökktu á „Aðrir sjá bókina í hillunni minni" á bókarskjánum til að fela eina bók, eða á „Aðrir sjá lesnar bækur mínar" í Prófíl til að fela þær allar. Í þínum eigin hillum breytist ekkert.
UmsögnAllir notendur Bookspeak, ásamt nafninu þínu og einkunninni sem þú gafst bókinni.
Athugasemd í þræðiAllir sem opna þráðinn, ásamt nafninu þínu og einkunninni sem þú gafst bókinni.
Að þér líki við umsögn eða athugasemdAllir sem sjá umsögnina eða athugasemdina geta séð hverjum líkar við hana.
Einkunn á bókBókavinir þínir sjá einkunnina, nema þú felir bókina. Félagar í bókaklúbbi sjá einkunnir á bókum klúbbsins. Einkunnin fylgir alltaf umsögn eða ummælum sem þú skrifar. Annars fer hún nafnlaust inn í meðaltöl.
Nafnið þittFélagar í hópunum þínum, bókavinir þínir, þau sem fá vinabeiðni eða deilihlekk frá þér, og þau sem lesa umsögn eftir þig.
Mæting á hittingÍ hittingi eða bókaklúbbi sjá félagarnir hver mætir. Í opnum þræði sjást aðeins tölur, engin nöfn.
Að þú fylgir þræðiEnginn.
MeðmæliManneskjan eða klúbburinn sem þú mæltir með bókinni við.
Bók í bókalottóiFélagar í klúbbnum sjá bókina og hver bætti henni við. Snúningurinn er aðeins í símanum þínum og er hvergi geymdur.
Netfangið þittVið birtum það ekki öðrum notendum. Félagar í hópunum þínum sjá nafnið þitt, aldrei netfangið.

Til hvers við notum gögnin

Til að veita þér það sem appið gerir: halda utan um bækurnar þínar, tengja þig við klúbba, þræði og bókavini, og minna þig á það sem er framundan. Grundvöllurinn er samningurinn við þig — þjónustan sem þú skráðir þig fyrir. Villuskýrslur, öryggi og yfirferð tilkynninga byggja á lögmætum hagsmunum okkar af því að appið virki og sé öruggt. Markaðspóstur byggir á samþykki þínu. Við seljum ekki gögnin þín og notum þau ekki í auglýsingar.

Markaðspóstur

Við sendum aðeins fréttir eða kynningar ef þú valdir það við nýskráningu. Þú getur dregið samþykkið til baka hvenær sem er með því að senda okkur línu á hallo@bookspeak.net. Það hefur engin áhrif á appið.

Hverjir vinna gögnin með okkur

Þessir aðilar geyma eða flytja gögnin fyrir okkar hönd, sem vinnsluaðilar, og mega ekki nota þau í eigin þágu:

Fari gögn til Bandaríkjanna er það á grundvelli EU–US Data Privacy Framework eða staðlaðra samningsákvæða Evrópusambandsins.

Hvaðan bókaupplýsingarnar koma

Síminn sækir sumar kápumyndir og bókaleitir beint af öðrum vefjum. Þeir sjá aðeins tæknilegu beiðnina, eins og hvaða vefsíða sem er, en ekkert um reikninginn þinn.

Notir þú Goodreads-vafrann ertu í beinum samskiptum við Goodreads, og þar gildir persónuverndarstefna Goodreads.

Hversu lengi

Við geymum gögnin á meðan reikningurinn þinn er virkur. Villuloggur þjónsins hreinsast sjálfkrafa eftir 30 daga og Firebase eyðir villuskýrslum eftir 90 daga. Afgreidd tilkynning eyðist 2 árum eftir afgreiðslu, nema hún eigi við umsögn sem er enn falin eða reikning sem er enn lokaður. Eyðir þú reikningnum hverfa gögnin strax úr gagnagrunninum; eldri öryggisafrit geta borið þau í stuttan tíma þar til þau renna út.

Að eyða reikningnum

Þú eyðir reikningnum beint í appinu: Prófíll → Eyða aðgangi. Þá hverfur:

Það sem er sameiginlegt stendur eftir án tengingar við þig: hópar sem aðrir eru enn í, hittingar og þræðir sem þú stofnaðir, bækur sem þú settir í bókalottó klúbbs og bækur sem þú bættir í bókaskrána. Sé enginn annar í hópi er hópnum eytt.

Réttindi þín

Samkvæmt persónuverndarlögum (GDPR) átt þú rétt á að fá afrit af gögnunum þínum, láta leiðrétta þau, láta eyða þeim, takmarka vinnslu þeirra, andmæla vinnslu og fá þau afhent á tölvutæku formi. Sendu okkur línu á hallo@bookspeak.net og við bregðumst við innan mánaðar. Teljir þú að við förum ekki rétt með gögnin þín getur þú kvartað til Persónuverndar.

Börn

Til að stofna reikning í Bookspeak þarftu að vera 13 ára eða eldri. Bookspeak býður engan barnaaðgang.

Vefurinn

bookspeak.net notar engar vafrakökur og enga vefgreiningu. Letrið er hýst á vefnum sjálfum.

Breytingar

Breytum við þessari stefnu uppfærum við dagsetninguna efst. Verði breytingin veruleg látum við vita í appinu.

Hafa samband

hallo@bookspeak.net

Ábyrgðaraðili: Renata Blöndal, Íslandi.

← Til baka á forsíðu